Sony Xperia XA1 - Sjálfkrafa aflæsing tækisins

background image

Sjálfkrafa aflæsing tækisins

Snjalllæsing auðveldar aflæsingu tækisins þannig að þú getir stillt það á sjálfkrafa

aflæsingu við ákveðnar aðstæður. Þú getur haft tækið þitt ólæst, til dæmis þegar það er

tengt við Bluetooth® tæki eða þegar þú ert með það á þér.
Þú getur stillt snjalllæsingu þannig að tækið sé ólæst með eftirfarandi stillingum:

Líkamsskynjun: Hafðu tækið ólæst þegar þú ert með tækið meðferðis.

Traustir staðir: Hafðu tækið ólæst þegar þú ert á traustum stað, t.d. heima hjá þér.

Traust tæki: Hafðu tækið ólæst þegar traust Bluetooth® tæki eða NFC tæki er tengt.

Traust andlit: Opnaðu símann með því að horfa á hann.

Traust rödd: Settu upp raddkennsl til að leita á öllum skjám.

Það er óvíst að snjalllæsing sé í boði á öllum mörkuðum, svæðum eða í öllum löndum.

Þegar snjalllæsing er virk þarftu samt að aflæsa tækinu handvirkt eftir endurræsingu og eftir að

hafa skilið það eftir óvirkt í 4 klukkustundir

Snjalllæsing er þróuð af Google™ og nákvæm virkni hennar getur breyst vegna uppfærslna frá

Google™.

Snjalllæsing virkjuð

1

Veldu mynstur, PIN-númer eða lykilorð sem skjálæsingu ef þú hefur ekki þegar gert

það.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Traustfulltrúi.

4

Pikkaðu á sleðann

Snjalllæsing (Google) til að kveikja á valkostinum.

5

Pikkaðu á örina til baka við hliðina á

Traustfulltrúi.

6

Finndu og pikkaðu á

Snjalllæsing.

7

Sláðu inn mynstur, PIN-númer eða lykilorð. Þú verður að slá inn þessi skilríki í hvert

skipti sem þú vilt breyta stillingum snjalllæsingar.

8

Veldu tegund snjalllæsingar.

Traust andlit sett upp

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traust

andlit.

3

Pikkaðu á

STILLA > NÆST. Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu og pikkaðu svo

á

LOKIÐ.

4

Fjarlægðu traust andlit með því að pikka á

Fjarlægja traust andlit > FJARLÆGJA.

Til að fá meiri nákvæmni pikkarðu

Traust andlit > Bæta mátun andlita.

Traust rödd sett upp

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traust rödd.

3

Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu.

Tækinu haldið ólæstu þegar þú ert með það á þér

Með því að nota líkamsskynjunina geturðu haft tækið áfram ólæst þegar þú hefur það á

þér, t.d. í höndunum, í vasanum eða í töskunni. Hröðunarmælirinn í tækinu heldur því

ólæstu á meðan hann skynjar að sért með það á þér. Tækið læsist þegar

hröðunarmælirinn skynjar að þú hafir lagt tækið frá þér.
Þegar þú notar líkamsskynjun verður þú að vita af eftirfarandi eiginleikum:

Tækið læsist alltaf sjálfkrafa þegar þú leggur tækið frá þér og það skynjar að þú ert ekki

lengur með það á þér.

Allt að ein mínúta getur liðið þangað til tækið læsist.

Eftir að þú ferð inn í bíl, strætisvagn eða önnur farartæki á landi geta liðið 5–10 mínútur

þangað til tækið læsist.

13

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Athugaðu að þegar þú ferð um borð í flugvél eða skip (eða önnur farartæki sem ekki

ferðast á landi) er hugsanlegt að tækið læsist ekki sjálfkrafa – því þarf að gæta þess að

læsa því handvirkt ef þörf er á.

Þegar þú tekur tækið upp á nýjan leik eða ferð út úr farartækinu er nóg að opna það einu

sinni og þá helst tækið ólæst á meðan þú hefur það á þér.

Líkamsskynjunin getur ekki gert greinarmun á því hver er með tækið á sér. Ef þú afhendir

einhverjum tækið á meðan það er ólæst og er að nota líkamsskynjunina má vera að tækið sé

ólæst fyrir hinum notandanum. Hafðu í huga að líkamsskynjunin er ekki eins öflugt öryggistæki

og mynstur, PIN-númer eða lykilorð.

Kveikt eða slökkt á líkamsskynjun

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing >

Líkamsskynjun.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja á valkostinum og pikkaðu svo á

HALDA ÁFRAM.

Pikkaðu á sleðann við hliðina á

Kveikt til að slökkva á valkostinum.

Tenging við traust tæki

Þú getur útnefnt tengt tæki sem traust tæki og haldið Xperia™ tækinu ólæstu á meðan

það er tengt við það. Þannig að ef þú hefur tæki sem þú tengir við Bluetooth® eða NfC

reglulega, til dæmis heimabíó eða hlaupaúr, getur þú bætt því við sem traustu tæki og

farið fram hjá auknu öryggi lásskjás til að spara tíma. Þessi eiginleiki hentar vel ef þú ert

oftast á tiltölulega öruggum stað þegar þú notar þessi tæki. Í sumum tilvikum gætir þú

þurft að aflæsa tækinu handvirkt áður en hægt er að tengja traust tæki við það.

Ekki er mælt með því að bæta við tækjum sem eru stöðugt tengd við tækið þitt sem traustum

tækjum, til dæmis Bluetooth® lyklaborðum eða kubbum.

Um leið og slökkt er á traustu Bluetooth® tæki eða það fer út úr drægni læsist skjárinn og þú

þarft PIN-númer, mynstur eða lykilorð til að opna hann.

Traustu Bluetooth®-tæki bætt við

1

Gakktu úr skugga um að tækið sé parað og tengt við það Bluetooth®-tæki sem

þú vilt bæta við sem traustu tæki.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing.

4

Í valmynd snjalllæsingarinnar pikkarðu á

Traust tæki > BÆTA TRAUSTU TÆKI

VIÐBluetooth

5

Pikkaðu á heiti tækis til að velja það af listanum yfir tengd tæki og pikkaðu svo á

JÁ, BÆTA VIÐ

6

To fjarlægja parað tæki, veldu það úr listanum og pikkaðu á

FJARLÆGJA

TRAUST TÆKI.

Traustu Bluetooth®-tæki bætt við

1

Gakktu úr skugga um að tækið sé parað og tengt við það Bluetooth®-tæki sem

þú vilt bæta við sem traustu tæki.

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing.

3

Pikkaðu á

Traust tæki > BÆTA TRAUSTU TÆKI VIÐ > NFC.

4

Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

5

To fjarlægja parað tæki, veldu það úr listanum og pikkaðu á

FJARLÆGJA

TRAUST TÆKI.

Gengið úr skugga um öryggi þegar traust tæki eru notuð

Mismunandi Bluetooth® tæki styðja mismunandi Bluetooth® staðla og öryggiseiginleika.

Það er mögulegt að einhver geti haldið Xperia™ tæki þínu ólæstu með því að líkja eftir

Bluetooth® tengingu þinni, jafnvel þótt traust tæki þitt sé hvergi nærri lengur. Tækið getur

ekki alltaf skorið úr um hvort tengingin sé örugg eða hvort verið sé að reyna að líkja eftir

henni.

14

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Þegar tækið getur ekki skorið úr um hvort þú sért að nota örugga tengingu færðu

tilkynningu í Xperia™ tækið þitt og getur þurft að aflæsa því handvirkt áður en traust tæki

getur haldið því ólæstu.

Drægni tengingar Bluetooth® getur verið breytileg eftir þáttum eins og tegund tækisins,

tengda Bluetooth® tækisins og umhverfinu. Bluetooth® tengingar geta dregið allt að 100

metra, allt eftir þessum þáttum.

Tenging við trausta staði

Þegar eiginleikinn Traustir staðir er uppsettur aftengist öryggi lásskjásins á Xperia™-

tækinu þegar þú ert á öruggri staðsetningu sem þú hefur tilgreint. Til að þessi eiginleiki

virki verðurðu að hafa nettengingu (helst um Wi-Fi) og leyfa tækinu að nota núverandi

staðsetningu þína.
Til að setja upp trausta staði skaltu fyrst ganga úr skugga um að kveikt sé á nákvæmri

staðsetningarstillingu eða sparnaðarstillingu fyrir staðsetningar í tækinu áður en þú bætir

við heima- eða sérvöldum staðsetningum.

Nákvæmt umfang traustrar staðsetningar er áætlað og getur náð út fyrir veggi heimilis þíns eða

annarra svæða sem þú hefur bætt við sem traustum staðsetningum. Þessi eiginleiki getur

haldið tækinu þínu ólæstu innan allt að 80 metra radíuss. Þú þarft einnig að vita að hægt er að

líkja eftir eða eiga við staðsetningarmerki. Aðili með aðgang að sérhæfðum búnaði gæti tekið

tækið úr lás.

Heimastaðsetningu bætt við

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning og pikkaðu svo á sleðann til að

kveikja á staðsetningarþjónustu.

3

Pikkaðu á

Stilling og veldu síðan staðsetningarstillinguna Mikil nákvæmni eða

Orkusparnaður.

4

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

5

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir > Heima.

6

Ef þú vilt setja inn aðra staðsetningu skaltu pikka á stækkunarglerið og slá inn

heimilisfangið. Tækið leitar að staðsetningunni sem slegin var inn.

Heimastaðsetningu breytt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning og pikkaðu svo á sleðann til að

kveikja á staðsetningarþjónustu.

3

Pikkaðu á

Stilling og veldu síðan staðsetningarstillinguna Mikil nákvæmni eða

Orkusparnaður.

4

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

5

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir.

6

Veldu heimastaðsetningu.

7

Pikkaðu á

Breyta.

8

Sláðu staðsetninguna sem þú vilt nota sem heimastaðsetningu inn í leitarstikuna.

Ef fleiri heimili deila sama götuheiti geturðu bætt við staðsetningu heimilisins innan

byggingarinnar sem sérvöldum stað.

Heimastaðsetning fjarlægð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir > Heima.

3

Pikkaðu á

Breyta > .

Notkun sérvalinnar staðsetningar

Þú getur bætt við hvaða staðsetningu sem er sem traustri, sérvalinni staðsetningu þar

sem tækið þitt má vera ólæst.

15

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sérvöldum stað bætt við

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir.

3

Pikkaðu á

Bæta traustum stað við.

4

Til að nota núverandi staðsetningu þína sem traustan og sérvaldan stað pikkarðu á

Velja þessa staðsetningu.

5

Ef þú vilt hins vegar setja inn aðra staðsetningu skaltu pikka á og slá inn

heimilisfangið. Tækið leitar að staðsetningunni sem slegin var inn. Til að nota

ráðlagt heimilisfang skaltu pikka á það.

6

Til að fínstilla staðsetninguna skaltu pikka á örina til baka við hliðina á

heimilisfanginu, draga síðan staðsetningarpinnann að þeirri staðsetningu sem

óskað er og pikka svo á

Velja þessa staðsetningu.

Sérvöldum stað breytt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir.

3

Veldu staðinn sem þú vilt breyta.

4

Pikkaðu á

Breyta heimilisfangi.

5

Ef þú vilt hins vegar setja inn aðra staðsetningu skaltu pikka á og slá inn

heimilisfangið. Tækið leitar að staðsetningunni sem slegin var inn. Til að nota

ráðlagt heimilisfang skaltu pikka á það.

6

Til að fínstilla staðsetninguna skaltu pikka á örina til baka við hliðina á

heimilisfanginu, draga síðan staðsetningarpinnann að þeirri staðsetningu sem

óskað er og pikka svo á

Velja þessa staðsetningu.

Sérvalinn staður fjarlægður

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning og pikkaðu svo á sleðann til að

kveikja á staðsetningarþjónustu.

3

Pikkaðu á

Stilling og veldu síðan staðsetningarstillinguna Mikil nákvæmni eða

Orkusparnaður.

4

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

5

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Snjalllæsing > Traustir

staðir.

6

Veldu staðinn sem þú vilt fjarlægja.

7

Pikkaðu á

Eyða.