Sony Xperia XA1 - Skjástillingar

background image

Skjástillingar

Birtustig skjásins stillt handvirkt óháð birtuskilyrðum

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár og pikkaðu á sleðann Aðlögun birtustigs til

að slökkva á þessum eiginleika ef ekki er þegar slökkt á honum.

3

Pikkaðu á

Birtustig.

4

Dragðu sleðann til að stilla birtustigið.

Rafhlaðan endist lengur ef birtustigið er lækkað.

Kveikt eða slökkt á titringi við snertingu

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð > Önnur hljóð.

3

Pikkaðu á sleðann

Titrar við snertingu til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

Stilling á biðtíma áður en slokknar á skjánum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Orkusparnaður.

3

Veldu valkost.

Til að slökkva á skjánum á fljótlegan hátt ýtirðu í stutta stund á aflrofann .

Stilling leturstærðar

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Leturstærð.

3

Veldu valkostinn sem óskað er eftir.

Skjástærð stillt

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Skjástærð.

3

Dragðu sleðann til að stilla valkostinn sem óskað er eftir.

Stilling hvítjöfnunar (ljósgjafa) á skjánum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Hvítjöfnun.

3

Dragðu sleðana í viðeigandi stöðu til að stilla hvítjöfnunina.

Pikkaðu á >

Sjálfgefin gildi til að færa hvítjöfnunarstillinguna aftur á sjálfgefin gildi.

57

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Snjallstýring baklýsingar

Snjallstýring baklýsingar heldur skjánum virkum á meðan þú heldur á tækinu. Þegar þú

leggur tækið frá þér slokknar á skjánum í samræmi við svefnstillingar þínar.

Kveikt eða slökkt á snjallstýringu baklýsingar

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Snjallstýring baklýsingar.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

Skjáfesting

Þú notar skjáfestingu til að stilla tækið þannig að aðeins skjár tiltekins forrits birtist á

skjánum. Ef þú ert til dæmis að spila leik og kemur óvart við heimatakkann kemur

skjáfestingin í veg fyrir að glugginn með leikjaforritinu minnki. Einnig er hægt að nota

þennan eiginleika ef þú lánar öðrum tækið þitt svo viðkomandi eigi erfiðara með að opna

meira en eitt forrit. Til dæmis er hægt að festa myndavélarforritið á skjáinn þegar þú lánar

einhverjum tækið til að taka mynd svo viðkomandi geti ekki með góðu móti notað önnur

forrit eins og tölvupóstsforritið.

Skjáfesting er ekki öryggiseiginleiki og kemur ekki að fullu í veg fyrir að aðrir notendur opni

skjáinn og fái aðgang að tækinu. Til að vernda gögnin þín ættir þú að stilla tækið þannig að

það biðji um PIN-númer, lykilorð eða munstur áður en hægt er að opna skjáinn.

Kveikt eða slökkt á skjáfestingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Skjáfesting.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

4

Ef þú ert með kveikt á skjáfestingu geturðu pikkað á sleðann

Biðja um

opnunarmynstur við losun til að kveikja eða slökkva á þessum

viðbótaröryggiseiginleika eftir þörfum.

Ekki er nauðsynlegt að hafa mynstur, PIN-númer eða lykilorð til að skjáfesting virki.

Skjár festur

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á skjáfestingu í tækinu.

2

Opnaðu forrit og skjáinn sem þú vilt festa.

3

Pikkaðu á .

4

Til að birta skjáfestingartáknið , strjúktu upp.

5

Pikkaðu á .

6

Pikkaðu á

Náði því í sprettiglugganum sem birtist.

Skjár losaður

Á festa skjánum heldurðu inni þar til skjárinn hefur verið losaður.

Ef þú valdir öryggisvalkost þegar þú festir skjáinn verðurðu að slá inn mynstrið þitt, PIN-

númerið eða aðgangsorðið til að opna tækið áður en hægt er að losa skjáinn.