Sony Xperia XA1 - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Til að stilla ljósmyndavélastillingar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

3

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.

Yfirlit yfir stillingar myndavélar

Upplausn

Veldu á milli nokkurra upplausna og hlutfalla áður en mynd er tekin. Mynd í meiri

upplausn er með betri gæði en þarf meira minni.
Aðalmyndavél:

23MP
5520×4144 (4:3)
23 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

venjulegum skjá eða prenta í mikilli upplausn.

20MP
5984×3376 (16:9)
20 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

víðskjá.

12MP
4000×3008 (4:3)
12 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

venjulegum skjá eða prenta í mikilli upplausn.

12MP
4624×2608 (16:9)
12 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

víðskjá.

98

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

3MP
2048×1536 (4:3)
3 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

venjulegum skjá eða prenta í mikilli upplausn. Þessi stilling er einungis í boði í

tökustillingunni

Handvirkt.

2MP
1920×1088 (16:9)
2 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Fremri myndavél:

8MP
3264×2448 (4:3)
8 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

venjulegum skjá eða prenta í mikilli upplausn.

5MP
3072×1728 (16:9)
5 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum

skjá eða prenta í mikilli upplausn.

3MP
2048×1536 (4:3)
3 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á

venjulegum skjá eða prenta í mikilli upplausn. Þessi stilling er einungis í boði í

tökustillingunni

Handvirkt.

2MP
1920×1088 (16:9)
2 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Tímastillir

Með tímastillinum er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan

eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni. Þú

getur einnig notað tímastilli ef þú vilt koma í veg fyrir að myndavélin hristist í myndatöku.

10 sek.

Veldu 10 sekúndna bið frá því að pikkað er á afsmellarann eða ýtt á myndavélarhnappinn.

3 sek.

Veldu 3 sekúndna bið frá því að pikkað er á afsmellarann eða ýtt myndavélarhnappinn.

Slökkt

Mynd er tekin um leið og þú pikkar á afsmellarann eða ýtir á myndavélarhnappinn.

Áhrifin Mjúk húð

Þú getur kveikt á

Mjúk húð í tækinu til að mýkja húðlit lítillega þegar þú tekur sjálfsmyndir

í tökustillingunum

Handvirkt og Öflugri sjálfvirkni.

Hlut fylgt eftir

Þegar þú velur hlut með því að snerta hann í myndglugganum fylgir myndavélin honum

fyrir þig.

99

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

HDR

Notaðu HDR (hátt virkt svið) stillinguna til að taka mynd á móti sterkri baklýsingu eða við

aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR bætir upp fyrir tapið á smáatriðum og skilar

mynd sem sýnir bæði dökk og ljós svæði.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .

ISO

Hægt er að stilla næmi ISO svo það aðlagist sjálfkrafa eða laga það handvirkt að

næmisstillingum frá 50 upp í 3200.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Mælingar

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í

myndefninu sem á að taka mynd af.

Andlit

Mælir magn ljóss á andliti myndefnisins og stillir lýsingu þannig að andlitið sé hvorki of dökkt né of ljóst.

Miðjun

Mælir miðju myndarinnar og ákvarðar lýsingu byggt á birtustigi myndefnisins þar.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndefnisins sem þú vilt taka mynd af.

Snerting

Stillir lýsingu á þeim hluta myndefnisins sem þú vilt fanga þegar þú snertir skjáinn.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Flass

Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst. Eftirfarandi

valkostir eru í boði þegar þú pikkar á flasstáknið á myndavélarskjánum:

Sjálfvirkt
Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.

Fylliflass
Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þessi stilling

kemur í veg fyrir óæskilega dökka skugga.

Laga rauð augu
Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.

Slökkt
Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt

birtuskilyrði séu léleg. Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu

tímastillingu til að forðast að myndir verði óskýrar.

Vasaljós
Flassið lýsir stöðugt á meðan myndir eru teknar.

Næturmyndarflass
Notað þegar andlitsmyndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna

langs lýsingartíma verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.

100

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.